Kim dregur kæruna til baka

Kim Kardashian hefur dregið kæru sína til baka.
Kim Kardashian hefur dregið kæru sína til baka. AFP

Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian hefur dregið kæru sína til baka, en hún hugðist lögsækja slúðurvefinn Media TakeOut sem hélt því fram að hún hefði logið til um ránið í París.

Frétt mbl.is: Kim Kardashian lögsækir slúðurblað

Miðillinn hélt því fram að Kardashian hefði logið til um ránið, og gaf í skyn að hún hygðist svíkja fé út úr tryggingafélagi sínu.

Eins og fram kemur í frétt Sky hefur stjarnan nú fallið frá lögsókninni, en miðillinn sendi frá sér afsökunarbeiðni á fréttaflutningnum fyrir tveimur vikum.

„Eftir að hafa rætt við heimildarmenn, sem sumir hverjir eru tengdir Kardashian-fjölskyldunni, erum við handviss um að Kardashian var rænd eins og  lögreglunni í París var tilkynnt um. Allir þeir sem eru enn á annarri skoðun hafa rangt fyrir sér,“ sagði  meðal annars í tilkynningu Media TakeOut.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson