Fjölskyldulíf Tom Cruise hefur verið mikið á milli tannanna á fólki, en því hefur verið haldið fram að hann eigi ekki í miklum tengslum við börn sín.
Samkvæmt frétt Daily Mail hefur Cruise undanfarið eytt tíma með yngstu dóttur sinni, Suri, en hún býr hjá móður sinni Katie Holmes.
Þá er leikarinn sagður hafa hitt dóttur sína í sumar, en hún er meðal annars sögð hafa eytt fimm dögum með honum á Englandi. Heimildarmenn segja að mikil leynd hafi ríkt yfir ferðinni og að lífvörður og barnfóstra Suri hafi verið með í för.
„Mikil leynd ríkti yfir öllu saman. Suri er Tom afar mikilvæg, hún er stór hluti af tilveru hans.“
Reglulega berast fregnir af því að samband feðginanna sé ekki með besta móti, en þau hafa ekki sést saman opinberlega síðan 2012, sama ár og Cruise og Holmes skildu.