Harry Prins sagður vera að slá sér upp með leikkonu

Harry prins er sagður eiga í sambandi við leikkonuna Meghan …
Harry prins er sagður eiga í sambandi við leikkonuna Meghan Markle. AFP

Fregnir herma að Harry Bretaprins eigi í sambandi við leikkonuna Meghan Markle, en hún fer með hlutverk Rachel Zane í sjónvarpsþáttunum Suits.

„Þau taka hverja viku fyrir sig og njóta þess að eyða tíma með hvort öðru. Harry hefur reynt að halda sambandinu leyndu því hann vill ekki hræða hana í burtu. Hann veit að hlutirnir munu breytast þegar fréttir af sambandinu kvisast út,“ er haft eftir ónefndum heimildamanni.

„Það er of snemmt að segja til um hvort hlutirnir muni þróast út í langvarandi samband. Þau eru bara að taka þetta skref fyrir skref.“

Líkt og fram kemur í frétt People eru skötuhjúin sögð hafa hist í Toronto í maí, þar sem þættirnir eru teknir upp. Leikkonan hefur einnig heimsótt London nokkrum sinnum undanfarna mánuði, en hún hefur verið dugleg að deila myndum á samfélagsmiðlum sínum.

Talsmaður Markle hefur ekki svarað fyrirspurnum erlendra blaðamanna um málið, en talsmaður prinsins hefur greint frá því að hann muni ekki tjá sig um persónuleg málefni hans.

Leikkonan Meghan Markle er líklega þekktust fyrir hlutverk sitt í …
Leikkonan Meghan Markle er líklega þekktust fyrir hlutverk sitt í þáttunum Suits. Ljósmynd / skjáskot Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson