Hver er kærasta Harrys?

Meghan Markle er sögð hafa heillað prinsinn upp úr skónum.
Meghan Markle er sögð hafa heillað prinsinn upp úr skónum. Ljósmynd / skjáskot CNN

Mikið hefur verið fjallað um ástarlíf Harrys prins undanfarið, en hann er talinn vera að slá sér upp með leikkonunni Meghan Markle.

Frétt mbl.is: Harry Prins og Meghan Markle yfir sig hrifin

Markle var ekki mikið þekkt áður en út kvisaðist að hún og prinsinn væru að stinga saman nefjum, en undanfarið hafa fjölmiðlar sýnt henni mikinn áhuga. En hver er þessi meinta kærasta prinsins. CNN tók saman nokkrar staðreyndir um Markle.

Markle er 35 ára, og fer með hlutverk Rachel Zane í sjónvarpsþáttunum Suits. Hún hefur einnig leikið í CSI: Miami, Castle, Fringe og 90210. Þá hefur hún einnig leikið í nokkrum kvikmyndum, svo sem Horrible Bosses og Remember Me.

Markle greindi frá því í fyrra að hún hefði lengi átt í erfiðleikum með að næla sér í hlutverk. „Ég var ekki nógu svört fyrir svörtu hlutverkin, og ekki nógu hvít fyrir þau hvítu. Ég var einhvers staðar í miðjunni, sem einhverskonar kameljón sem gat ekki krækt sér í starf,“ sagði leikkonan í viðtali.

Markle heldur úti bloggsíðunni The Tig, þar sem hún fjallar um mat, tísku, förðun, ferðalög og allt þar á milli. Þá sinnir hún einnig mannúðarstörfum, til að mynda hefur hún verið talsmaður kvenna hjá sameinuðu þjóðunum auk þess sem hún hefur starfað hjá samtökunum Clean Water Campaign.

Markle er fráskilin, en hún var gift kvikmyndaframleiðandanum Trevor Egelston. Þau skildu árið 2013 eftir tveggja ára hjónaband.

Leikkonan er mikill hundavinur. Sjálf á hún tvo hunda sem hún fann í dýraathvarfi, en hún hefur oftsinnis hvatt fólk til þess að taka að sér munaðarlaus dýr.

My loves #adoptdontshop #happysunday

A photo posted by Meghan Markle (@meghanmarkle) on Oct 23, 2016 at 2:59pm PDT

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson