Amy Schumer gaf það út í aðdraganda forsetakosninganna í Bandaríkjunum að hún myndi flytja til Spánar ef Donald Tump myndi ná kjöri.
Frétt mbl.is: Munu stjörnurnar flýja nýja forsetann?
Nú segist Schumer einungis hafa verið að grínast, en hún skrifaði langa færslu á Instagram-síðu sína þar sem hún úthúðar Trump og kjósendum hans.
„Allir þeir sem segja að ég ætti að pakka niður í töskur eru jafn ógeðslegir og þeir sem kusu þennan rasista, sem er á móti samkynhneigðum og hefur opinberlega níðst á konum.“
Þá segir Schumer einnig að kjósendur Trumps séu veikgeðja og illa upplýstir.
„Þið fenguð það sem þið vilduð og nú getið þið horft á himnana opnast. Ég er bókstaflega hamstola. Ég græt vegna Hillary, og ég græt vegna alls hins gáfaða fólks sem veit muninn á réttu og röngu. Ég græt ykkar vegna, sem félluð fyrir innantómum loforðum og frösum.“
Orðsendinguna í heild sinni má lesa hér að neðan.