Hrósar Brad í hástert

Marion Cotillard segir Brad Pitt vera gull af manni.
Marion Cotillard segir Brad Pitt vera gull af manni. AFP

Leikkonan Marion Cotillard, sem lék á móti Brap Pitt í kvikmyndinni Allied, hrósaði leikaranum í hástert á dögunum.

„Brad er svo góður maður og auðvitað frábær leikari. Hann er svo góð manneskja þannig að það er ekki erfitt að láta sér lynda við hann,“ sagði leikkonan í viðtali við Entertainment Tonight.

Cotillard og Pitt gengu rauða dregilinn í síðustu viku, en nýjasta kvikmynd þeirra var frumsýnd á dögunum.

Pitt hefur látið lítið fyrir sér fara undanfarið, en hann mætti þó á frumsýningu Allied. Skömmu áður hafði verið greint frá því að rannsókn á hendur Pitt væri lokið, og að ekkert hefði fundist sem benti til þess að hann hefði beitt son sinn ofbeldi.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson