Náði ekki að hitta drottninguna

Meghan Markle er sögð hafa heillað prinsinn upp úr skónum.
Meghan Markle er sögð hafa heillað prinsinn upp úr skónum. Ljósmynd / skjáskot CNN

Kærasta Harrys prins, leikkonan Meghan Markle, er farin aftur til síns heima en hún hefur undanfarið dvalið hjá prinsinum í London.

Markle er búsett í Kanada, þar sem þættirnir Suits eru teknir upp, en hún hafði tekið sér örlítið frí frá störfum.

Samkvæmt frétt Mirror var búist við því að Markle myndi koma opinberlega fram með prinsinum í fyrsta sinn á laugardag, en hún hafði þá þegar yfirgefið landið.

Þá var einnig búist við því að prinsinn myndi kynna kærustuna fyrir sjálfri drottningunni, en að sögn miðilsins gafst ekki tími til þess.

„Þetta var aðeins stutt frí, þar sem hún er í tökum. Það hefur mikið verið rætt um að kynna hana fyrir drottningunni og Karli Bretaprinsi, en það gafst einfaldlega ekki tími til þess,“ er haft eftir ónefndum heimildarmanni.

Fregnir herma að leikkonan hafi ekki náð að hitta Elísabetu …
Fregnir herma að leikkonan hafi ekki náð að hitta Elísabetu drottningu áður en hún hélt af landi brott. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson