Er Brad Pitt kominn með nýja?

Er Brad Pitt genginn út?
Er Brad Pitt genginn út? AFP

Heimildir berast nú úr öllum áttum vestanhafs um að Hollywood-stjörnurnar Brad Pitt og Kate Hudson eigi í rómantísku sambandi.

Fréttirnar hafa þó hvergi fengist staðfestar en ekki hefur náðst í leikarana vegna málsins.

Voru meðal annars ritaðar fréttir á dögunum þess efnis að Hudson og Pitt væru orðin afar náin og farin að hittast reglulega.

Til þess að hella olíu á þennan ástareld tjáði fyrrum lífvörður Brad Pitt og Angelinu Jolie sig um málið. „ Ég þekki bæði Pitt og Hudson og það kæmi mér ekki á óvart að þau væru að hittast. Hudson er dásamleg kona og Pitt væri bara heppinn að fá að vera með henni. „ Einnig bætti lífvörðurinn málglaði því við að áður en að Pitt kynntist Jolie hafi hann verið fullkomlega hamingjusamur með Jennifer Aniston. Þar höfum við það.

Pitt og Hudson yrðu augljóslega glæsilegt par.
Pitt og Hudson yrðu augljóslega glæsilegt par. AFP
Á meðan allt lék í lyndi hjá Pitt og Jolie.
Á meðan allt lék í lyndi hjá Pitt og Jolie. MARK RALSTON
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er ekki rétti tíminn til að vera einn. Komdu þér út úr húsi. Viss aðili fær rauða spjaldið hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er ekki rétti tíminn til að vera einn. Komdu þér út úr húsi. Viss aðili fær rauða spjaldið hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant