Ástarlíf söngkonunnar Mariah Carey hefur mikið verið á milli tannanna á fólki undanfarið, en fyrir tæpum tveimur mánuðum slitnaði upp úr hjá henni og ástralska auðkýfingnum James Packer.
Carey hefur undanfarið verið orðuð við samstarfsfélaga sinn, dansarann Bryan Tanaka, en þau virðast nú hafa staðfest orðróminn.
Myndir náðust af skötuhjúunum í afar innilegum stellingum, en þau voru í fríi á Hawaii samkvæmt frétt Daily Mail.
Frétt mbl.is: Gaf vandræðalegan kjöltudans á tónleikum