Kanye West útskrifaður

Kanye West er kominn heim í faðm fjölskyldunnar.
Kanye West er kominn heim í faðm fjölskyldunnar. AFP

Rapparinn Kanye West hefur verið útskrifaður af UCLA-spítalanum, en hann var lagður inn fyrir rúmri viku vegna andlegra veikinda.

Samkvæmt frétt Daily Mail er West nú kominn heim til fjölskyldu sinnar, en hann mun þó ennþá þurfa að vera undir eftirliti lækna vegna veikinda sinna.

Fjölskyldan hefur þurft að þola ýmislegt undanfarna mánuði, en Kim Kardashian varð fyrir árás í haust. Þá er West sagður hafa átt í erfiðleikum með svefn undanfarnar vikur, auk þess sem hann er sagður hafa þjáðst af vænisýki.

Rapparinn aflýsti fjölda tónleika, en hann hafði sýnt af sér undarlega hegðun á nokkrum nýafstöðnum tónleikum.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson