Greint hefur verið frá því að bandaríska rokkhljómsveitin Red Hot Chili Peppers muni halda tónleika hér á landi næsta sumar.
Fréttastofa Vísis segist hafa öruggar heimildir fyrir því að hljómsveitin muni troða upp í nýju Laugardalshöllinni, sem rúmar um það bil 10 þúsund gesti.
Samkvæmt frétt Vísis hafa samningaviðræður staðið yfir í langan tíma, en þó er ekki er ljóst hvaða tónleikahaldari stendur fyrir tónleikunum.
Samkvæmt heimasíðu hljómsveitarinnar hefst Evróputúr sveitarinnar í júlí á næsta ári, en þar er þó ekki minnst á fyrirhugaða tónleika á Íslandi.