Harry Potter á leið til New York

Handritið að leikritinu um Harry Potter og bölvun barnsins var …
Handritið að leikritinu um Harry Potter og bölvun barnsins var einnig gefið út. AFP

Leikritið Harry Potter og bölvun barnsins er á leið til Bandaríkjanna. Framleiðendur þess segjast vera langt komnir í viðræðum um uppsetningu á Broadway.

J.K. Rowling, skapari Harry Potter-heimsins, segist vera himinlifandi yfir fréttunum enda sé hópurinn nú einu skrefi nær því að yfirfæra leikritið fyrir uppsetningu á Broadway. Rowling er einn handritshöfundanna ásamt Jack Throne og John Tiffany sem leikstýrir einnig sýningunni í London.

Samkvæmt frétt BBC stendur til að breyta Lyric-leikhúsinu í New York í tengslum við uppsetninguna. Það er eitt stærsta leikhúsið á Broadway en um þessar mundir heldur sirkushópurinn Cirque du Soleil sýningar þar. Sætum í leikhúsinu verður fækkað svo að leikhúsgestir geti upplifað meiri nánd við sýninguna.

Uppselt hefur verið á Harry Potter og bölvun barnsins í London síðan leikritið var frumsýnt í júní síðastliðnum en áætlað er að sýningar á Broadway hefjist árið 2018.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson