Það er ekki tekið út með sældinni að vera stórstjarna eins og Sean Penn komst að á dögunum þegar lögreglan handtók konu sem hafði setið um leikarann.
Samkvæmt frétt TMZ var konan handtekin í síðustu viku, en hún hefur ítrekað reynt að ná í leikarann símleiðis eða í gegnum tölvupóst.
Þá lagði hún leið sína á heimili leikarans, en Penn tilkynnti lögreglu atvikið í kjölfarið. Daginn eftir kom konan þó aftur á heimili leikarans og var þá handtekin.
Samkvæmt frétt TMZ á konan við andleg veikindi að stríða, en hún telur sig eiga í ástarsambandi við leikarann. Henni var sleppt lausri gegn tryggingu daginn eftir að hún var handtekin.