Breski leikarinn Peter Vaughan lést í morgun, 93 ára að aldri. Vaughan er best þekktur fyrir leik sinni í sjónvarpsþáttunum Porridge og Game of Thrones, þar sem hann fór með hlutverk hins blinda Maester Aemon.
Í frétt BBC segir að Vaughan hafi lengi verið þekkt andlit á breskum sjónvarpsskjám en hann skaust aftur upp á stjörnuhimininn þegar hann lék Maester Aemon í Game of Thrones-þáttunum.
Á Vaughan meðal annars að hafa sagt að magnið af aðdáendabréfum sem hann fengi vegna Game of Thrones væri gífurlegt.