Söngkonan Lady Gaga hefur greint frá því að hún þjáist af áfallastreituröskun eftir að hafa verið nauðgað á sínum yngri árum.
„Ég þjáist af andlegum veikindum og á hverjum degi þarf ég að takast á við afleiðingar þess,“ sagði söngkonan í viðtali, en hún heimsótti nýverið athvarf fyrir transbörn.
„Ég sagði krökkunum að ég þjáist af áfallastreituröskun. Ég hef aldrei sagt neinum það áður. Gæskan sem læknar, vinir mínir og fjölskylda sýndu mér björguðu lífi mínu, bætti söngkonan við.“
Frétt Sky