Lady Gaga státar af stóru safni húðflúra víðsvegar á líkamanum. Hún kaus þó að hylja flúrin í gærkvöldi þegar hún kom fram fyrir konungsfjölskylduna í London.
Söngkonan notaði farða til að hylja húðflúrin, sem henni hefur líkast til ekki þótt við hæfi að sýna Karli Bretaprins og hertogaynjunni af Cornwall, Camillu Parker Bowles.
Eins og fram kemur í frétt Daily Mail huldi Gaga einnig húðflúr sín þegar tók á móti Golden Globe-verðlaununum fyrr á árinu.