Vilja ekki að mágkonan noti eftirnafnið

Kim og Kourtney Kardashian eru ekki hrifnar af því að …
Kim og Kourtney Kardashian eru ekki hrifnar af því að Blac Chyna notist við eftirnafn þeirra. Með þeim á mynd er móðir þeirra, Kris Jenner. AFP

Þótt að Blac Chyna, sem heitir réttu nafni Angela Renee, sé trúlofuð Rob Kardashian þýðir það ekki endilega að hún muni fá að nota ættarnafn hans á opinberum vettvangi eftir brúðkaupið.

Samkvæmt frétt TMZ vilja systur Robs, Kourtney, Kim og Khloé, koma í veg fyrir að Chyna geti skrásett vörumerkið Angela Renee Kardashian og þar með notast við eftirnafn þeirra á opinberum vettvangi, til að mynda á samfélagsmiðlum.

Systurnar segja að Chyna vilji einungis hagnast á eftirnafni þeirra. Auk þess halda þær því fram að það muni valda mannorði þeirra skaða ef mágkona þeirra, sem er fyrrverandi nektardansmær, muni fá að nýta sér eftirnafnið.

Fyrirsætan Blac Chyna og Rob Kardashian eignuðust dóttur á dögunum.
Fyrirsætan Blac Chyna og Rob Kardashian eignuðust dóttur á dögunum. Skjáskot / Daily Mail
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson