Leikkonan Jenna Dewan Tatum er sérdeilis ánægð með eiginmann sinn, leikarann Channing Tatum, sem hún segir standa sig vel í bólinu.
„Ég hef alltaf verið afar kynferðislega þenkjandi manneskja,“ sagði leikkonan og dansarinn í samtali við tímaritið Cosmopolitan.
„Við lifum mjög, mjög góðu og heilbrigðu kynlífi. Eitthvað við það að vera dansari tengir mann líkamanum með ákveðnum hætti. Þetta er frum- og mannleg orka frá náttúrunnar hendi. Maður skynjar líkamann með ákveðnum hætti. Og Channing er einnig mjög í takt við þetta.“
Skötuhjúin gengu í hjónaband árið 2012, en þau kynntust sex árum fyrr þegar þau léku á móti hvort öðru í dansmyndinni Step Up.