Móðir One Direction stjörnunnar Louis Tomlinson lést á miðvikudag en banamein hennar var hvítblæði. Johannah Deakin varð 43 ára gömul en vinir og aðdáendur Tomlinson styðja hann í gegnum þessa erfiðu tíma.
Liam Payne, félagi Tomlinson í One Direction, sendi honum langa kveðju sem hann deildi á samfélagsmiðlum. „Ég samhryggist þér innilega vinur minn. Mig verkjar í hjartað og mundu að ég elska þig, sama hversu nálægt þér ég er. Ég er alltaf til staðar fyrir þig, eins og þú hefur alltaf verið fyrir mig.“
Tónlistarkonan Cheryl Cole, eiginkona Payne, sendi Tomlinson einnig skilaboð. „Ég samhryggist þér innilega á þessum erfiðu tímum.“
Hinn 24 ára gamli Tomlinson mun koma fram í sjónvarpsþættinum X-Factor í Bretlandi annað kvöld eins og áætlað hafði verið en það var hinsta ósk móður hans.