Pippa giftir sig í maí

Skötuhjúin trúlofuðu sig fyrr á árinu.
Skötuhjúin trúlofuðu sig fyrr á árinu. Skjáskot / The Telegraph

Brúðkaup Pippu Middleton og unnusta hennar, James Matthews, fer fram næsta vor, en fregnir herma að laugardagurinn 20. maí hafi orðið fyrir valinu.

Samkvæmt frétt Daily Mail mun athöfnin fara fram í St. Marks-kirkjunni í Englefield, en veislan verður haldin á heimili foreldra Middleton.

Georg prins, litli frændi Middleton, er sagður munu vera í hlutverki hringabera og Karlotta prinsessa mun vera blómastúlka.

Frétt mbl.is: Hvers vegna verður Katrín ekki brúðarmær?

Þá mun tískuhönnuðurinn Giles Deacon sjá um að hanna brúðarkjólinn, en hann sást burðast með efni fyrir utan heimili Middleton og Matthews á dögunum.

Frétt mbl.is: Trúlofunarhringurinn kostaði 32 milljónir

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þessi dagur er betri en flestir þar sem þú hefur gleymt gömlum byrðum. Gakktu úr skugga um að þú misskiljir ekki neitt áður en þú skuldbindur þig til einhvers.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þessi dagur er betri en flestir þar sem þú hefur gleymt gömlum byrðum. Gakktu úr skugga um að þú misskiljir ekki neitt áður en þú skuldbindur þig til einhvers.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant