Enginn skilnaður í farvatninu

Hjónin Kanye West og Kim Kardashian.
Hjónin Kanye West og Kim Kardashian. AFP

Einn besti vinur Kim Kardashian segir að hún og eiginmaðurinn Kanye West hlakki til nýs árs. „Kim og Kanye hlakka til næsta árs, nýrra tíma. Þetta verður gott ár,“ segir vinurinn, Jonathan Cheban, í samtali við Us Weekly. Hann segir að Kanye, sem var lagður örmagna inn á sjúkrahús á dögunum, líði betur.

Cheban segir það alrangt að parið sé að skilja. „Ég get sagt ykkur að þessi skilnaður verður ekki. Ég varð undrandi er ég var spurður út í þetta. Ég get sagt ykkur að þau eru alls ekki að fara að skilja.“

Mikið hefur gengið á í lífi hjónanna undanfarna mánuði. Fyrir utan taugaáfallið sem Kanye fékk var Kardashian rænd í íbúð sem hún leigði í París í október. Parið sem þyrstir yfirleitt í athygli hefur haldið sig til hlés síðan og Kardashian hefur varla látið sjá sig á almannafæri. Ránið er enn óupplýst og enginn hefur verið handtekinn.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þessi dagur er betri en flestir þar sem þú hefur gleymt gömlum byrðum. Gakktu úr skugga um að þú misskiljir ekki neitt áður en þú skuldbindur þig til einhvers.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þessi dagur er betri en flestir þar sem þú hefur gleymt gömlum byrðum. Gakktu úr skugga um að þú misskiljir ekki neitt áður en þú skuldbindur þig til einhvers.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant