Pitt á fullu í ræktinni

Leikarinn kom fram á Golden Golbe-hátíðinni sem fram fór á …
Leikarinn kom fram á Golden Golbe-hátíðinni sem fram fór á sunnudaginn. Skjáskot / Us Weekly

Brad Pitt hefur grennst töluvert eftir að Angelina Jolie sótti um skilnað. Heimildamaður tímaritsins Us Weekly segir þyngdarmissinn ekki einvörðungu stafa af álagi, heldur hafi Pitt ákveðið að taka heilsuna föstum tökum.

„Hann er farinn að setja sjálfan sig í forgrunn á ný. Hann passar hvað hann lætur ofan í sig og er með kokk sem eldar hollan mat fyrir hann.“

„Hann er farinn að æfa af kappi og eyðir miklum tíma utandyra við fjallgöngur og gönguferðir. Hann lyftir einnig mikið og er staðráðinn í því að lifa heilsusamlegu lífi.“

Mikið hefur gengið á í lífi leikarans undanfarið, enda hefur hann staðið í blóðugum skilnaði og forræðisdeilu. Hann og Jolie hafa þó náð samkomulagi um að ganga persónulega frá skilnaðinum, en það verður ekki gert fyrir opnum tjöldum.

Frétt mbl.is: Pitt og Jolie semja um skilnaðinn

Brad Pitt hefur ekki átt sjö dagana sæla undanfarið, en …
Brad Pitt hefur ekki átt sjö dagana sæla undanfarið, en hann er nú farinn að huga að heilsunni. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant