Borðar 10.000 kaloríur á dag

Arbab Khizer Hayat er tæplega hálft tonn á þyngd.
Arbab Khizer Hayat er tæplega hálft tonn á þyngd.

Það er ekki oft sem við flytjum fréttir af dægurmálum í Pakistan. Þar er nú stjarna fædd í Arbab Khizer Hayat, 25 ára gömlu heljarmenni. Hayat er hvorki meira né minna en 435 kíló og um 190 cm hár. Hayat er þegar orðinn stórstjarna í Pakistan og fær hann mörg hundruð heimsóknir á heimili sitt daglega þar sem trylltir aðdáendur heimta „sjálfur“ af goðinu með sér. Hayat gerir ýmislegt til að halda vigtinni og passar, að eigin sögn, mataræðið vel. Hann borðar 36 egg á hverjum morgni, þrjú og hálft kíló af rauðu kjöti sem hann skolar niður með fimm lítrum af mjólk.

Hann passar að neyta aldrei minna en 10.000 kaloría á dag. Hayat hefur miklar væntingar til framtíðarinnar og ætlar sér stóra hluti á kraftlyftingasviðinu auk þess sem hann hefur áhuga á að ná árangri í amerískri glímu. Eins og meðfylgjandi mynd ber með sér er Hayat engin rengla, hrikalegur á velli og er hann í heimalandinu þekktur undir nafninu „Hulk“. Það er ekki skrýtið.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson