Kardashian: „Hann dró upp byssu“

Kim Kardashian ásamt eiginmanni sínum Kanye West og systur sinni …
Kim Kardashian ásamt eiginmanni sínum Kanye West og systur sinni Kourtney Kardashian í París. AFP

Franskt dagblað hefur birt vitnisburð raunveruleikastjörnunnar Kim Kardashian hjá lögreglunni þar sem hún greinir frá því þegar ræningi hótaði henni með byssu er hún neitaði að láta hann fá hring sem var hundruða milljóna króna virði.

Kardashian lýsti því hvernig hún var kefluð og bundin og sagði að einn úr hópi ræningjanna hafi verið í jakka með áletrun sem gaf til kynna að hann væri í lögreglunni.

Dagblaðið, Journal du Dimanche, kvaðst hafa einkaaðgang að handskrifaðri skýrslu sem var byggð á skýrslunni sem var tekin af Kardashian. Þar sagði hún að ræningjarnir hafi virst vera „óreyndir“.

Alls hafa tíu manns verið ákærðir grunaðir um aðild að ráninu á skartgripum stjörnunnar.

Meintur höfuðpaurinn á bak við ránið var jafnframt ákærður í fyrradag.

Frétt mbl.is: Glæpamenn af gamla skólanum

Lögreglumenn á verði við inngang hótelsins í París.
Lögreglumenn á verði við inngang hótelsins í París. AFP

Journald du Dimanche greinir frá því að Kardashian hafi heyrt hávaða við dyrnar að hótelherbergi sínu eftir að hún kom til baka úr kvöldmat um miðnætti.

Lífvörður hennar var ekki á staðnum því hann var að gæta systur hennar, Kourtney, á næturklúbbi.

„Ég sá í gegnum rennihurð að tvær manneskjur voru á leiðinni til mín,“ sagði Kardashian og bætti við að einn maður hafi verið í „jakka með orðinu „lögregla“ skrifað á hann“.

„Sýndi honum hringinn“

„Hann spurði mig með sterkum frönskum hreim hvar hringurinn minn væri. Hann var á náttborðinu mínu. Ég sagðist ekki vita það og þá dró hann upp byssu og ég sýndi honum hringinn,“ sagði hún við lögregluna og nefndi að hringurinn væri fjögurra milljóna dollara virði.

Kardashian sagði lögreglunni að mennirnir hafi bundið hana með plastsnúrum og einangrunarlímbandi. „Þeir báru mig í baðherbergið,“ sagði hún en þar var henni komið fyrir í baðkarinu.

Auk hringsins tóku ræningjarnir skartgripaskrín með tveimur Cartier-demantsarmböndum, demantshálsmen, gyllt Rolex-úr og demantskross.

Eftir að mennirnir voru farnir á brott tókst Kardashian að losa sjálfa sig. Hún sagði lögreglunni að mennirnir hefðu verið „frekar óreyndir miðað við hvernig þeir bundu mig“.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson