„Andkristur“ handtekinn fyrir ofsabræði

Harvey Spencer Stephens er þekktastur fyrir að hafa leikið Damien …
Harvey Spencer Stephens er þekktastur fyrir að hafa leikið Damien litla í kvikmyndinni The Omen. Skjáskot / Indiewire

Harvey Spencer Stephens, sem túlkaði djöfullega drenginn Damien í kvikmyndinni The Omen árið 1976, hefur verið dæmdur fyrir líkamsárás. Stephens missti stjórn á skapi sínu í umferðinni á síðasta ári, en hann réðst á tvo hjólreiðamenn eins og fram kemur í frétt Sky.

Atvikið átti sér stað í ágúst, en dæmt var í málinu á dögunum. Samkvæmt saksóknaranum Keiran Brand lét Stephens öllum illum látum þegar hann keyrði fram á tvo hjólreiðamenn, en þeir hjóluðu hlið við hlið á götu sem Stephens ók eftir.

Stephens er sagður hafa flautað af miklu offorsi á mennina og í kjölfarið sýndi annar hjólreiðakappinn honum fingurinn. Þetta hugnaðist Stephens ekki, en hann tók fram úr mönnunum tveimur, stöðvaði bifreiðina og réðst á mennina.

Stephens rotaði annan manninn, en þegar hinn skarst í leikinn réðst hann einnig á hann og kýldi hann ítrekað í andlitið með þeim afleiðingum að tennur hans sködduðust og hjálmur hans eyðilagðist.

Stephens játaði brot sitt og gekkst við því að hafa hagað sér afar illa. Hann fékk 12 mánaða skilorðbundinn dóm og þarf að auki að sinna 150 klukkustunda samfélagsþjónustu. Þá þarf hann að greiða fórnarlömbum sínum 1000 sterlingspund, sem samsvarar tæplega 140 þúsund krónum. Þar fyrir utan þarf hann að greiða öðru fórnarlambinu 17 þúsund krónur í skiptum fyrir hjálminn sem hann skemmdi.

Stephens missti algerlega stjórn á sér í umferðinni.
Stephens missti algerlega stjórn á sér í umferðinni. Skjáskot / Sky
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson