Bella brjáluð út í Selenu

Bella Hadid er ekki ánægð með það að fyrrverandi kærastinn …
Bella Hadid er ekki ánægð með það að fyrrverandi kærastinn hennar hafi róið á ný mið. AFP

Bella Hadid, fyrrverandi kærasta tónlistarmannsins The Weeknd, er ekki par hrifin af ungstirninu Selenu Gomez sem er talin vera að slá sér upp með söngvaranum vinsæla.

Fyrirsætan hafði upphaflega haldið því fram að sambandsslitin hefðu verið gerð í góðu og að hún og tónlistarmaðurinn, sem heitir réttu nafni Abęl Tesfaye, væru mestu mátar. Hún er þó ekki hrifin af því að hann og Gomez séu farin að stinga saman nefjum svo fljótt.

„Sambandsslitin hjá Bellu og Abel voru ekki dramatísk, en að sjálfsögðu er hún reið og sár yfir því hversu fljótt hann er farinn að vera með Selenu,“ sagði heimildamaður tímaritsins People og bætti við að það hefði verið Hadid sem batt endi á sambandið.

Þá hefur einnig verið greint frá því að Hadid hafi hætt að fylgjast með Gomez á samfélagsmiðlum, enda hafi henni mislíkað hið nýja samband.

Frétt mbl.is: Selena Gomez og The Weeknd nýjasta parið?

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson