Segja Amal eiga von á tvíburum

Fjölmiðlar telja að Clooney hjónin gætu átt von á tvíburum.
Fjölmiðlar telja að Clooney hjónin gætu átt von á tvíburum. Skjáskot / Daily Mail

Stjörnuhjónin Amal og George Clooney hafa verið mikið á milli tannanna á fólki undanfarið, enda vilja margir meina að þau eigi von á barni.

Samkvæmt slúðurmiðlinum In Touch eiga hjónakornin þó von á tvíburum, en Amal er sögð bera bæði stúlku og dreng undir belti.

„Amal er ólétt af tvíburum, strák og stelpu,“ er haft eftir ónefndum heimildamanni miðilsins.

„Þegar George og Amal komust að því að þau ættu von á tvíburum urðu þau hissa, en líka svolítið skelkuð því þau voru sammála um að eitt barn væri nóg. Þegar þau fréttu síðan að þetta væru strákur og stelpa urðu þau ofsalega glöð. Þeim finnst þau hafa dottið í lukkupottinn.“

„George tekur tíðindunum sérstaklega vel, miðað við að hann hafi ekki viljað eiga börn. Hann er mjög spenntur vegna meðgöngunnar, og yfir tilhugsuninni að ala upp tvö börn,“ segir í frétt In Touch.

Frétt mbl.is: Blæs ekki á sögusagnirnar

Margir telja að Amal og George Clooney eigi von á …
Margir telja að Amal og George Clooney eigi von á erfingja, eða tveimur. Skjáskot / Daily Mail
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson