Leikarinn Cuba Gooding Jr. hefur sótt um skilnað frá eiginkonu sinni, Söru Kapfer, eftir 22 ára hjónaband.
Hjónakornin höfðu reyndar skilið að borði og sæng árið 2014, en höfðu þó haldið áfram að hittast og fara á stöku stefnumót eins og fram kemur í frétt Daily Mail.
Gooding Jr. og Kapfer eiga saman þrjú börn, tvö þeirra eru uppkomin, en yngsta dóttir þeirra er 11 ára.
Leikarinn fer fram á sameiginlegt forræði yfir stúlkunni, en hefur fallist á að greiða Kapfer framfærslueyri.