Leikarahjónin Chris Pratt og Anna Faris hafa verið gift í tæp sjö ár, og eiga saman einn son.
Hjónin kynntust við tökur á myndinni Take Me Home Tonight fyrir 10 árum, og hafa leikið á móti hvort öðru nokkrum sinnum eftir það.
Á dögunum gafst Pratt tækifæri til að koma fram í sjónvarpsþætti eiginkonunnar, Mom. Skötuhjúin virðast hafa skemmt sér ákaflega vel á tökustað, en þau léku meðal annars í rómantískri senu.
„Við lékum kynlífssenu, eða kynþokkafulla senu,“ sagði Pratt í viðtali við ET.
„Við höfum verið að æfa okkur í 10 ár,“ bætti leikarinn síðan við.
Pratt segist ennfremur hafa skemmt sér konunglega við tökurnar, enda gaman að fá að fylgjast með eiginkonunni í vinnunni.
„Ég veit ekki hvort það er gaman fyrir alla. Það er þó gaman fyrir mig, enda er Anna Faris konan mín.“