Barnsmóðir Jagger frystir sig í form

Dansarinn skellti sér í nokkurs konar frystiklefa sem á að …
Dansarinn skellti sér í nokkurs konar frystiklefa sem á að hjálpa til við þyngdartap. Skjáskot / Instagram

Melanie Hamrick, barnsmóðir rokkarans Mick Jagger, slær ekki slöku við eftir að sonur þeirra kom í heiminn í síðasta mánuði.

Pilturinn litli, sem hlotið hefur nafnið Deveraux Octavian Basil Jagger, er fyrsta barn Hamrick. Jagger átti hins vegar sjö börn fyrir á aldrinum 17 – 46 ára.

Hamrick, sem er ballettdansari, hefur verið iðin í ræktinni til að koma sér aftur í sitt fyrra form og hefur hún verið dugleg að birta myndir af sér á samfélagsmiðlum.

Jagger og Hamrick hafa ekki í hyggju að giftast, en söngvarinn ætlar þó að sjá fyrir syni sínum.

Frétt mbl.is: Borgar barnsmóðurinni fúlgur fjár

Hamrick var komin á fullt í ræktinni skömmu eftir að pilturinn kom í heiminn, en hún hlakkar augljóslega til að snúa aftur til vinnu.

 Dansarinn ákvað að láta frysta sig, en margir telja að það hjálpi til við þyngdartap.

Litli guttinn kom í heiminn í desember.

I'm so love with my baby Deveraux Jagger 💙 Thank you @lizzyjagger for the sweet introduction 😍😂 ❤️

A photo posted by Melanie Hamrick (@melhamrick) on Dec 16, 2016 at 9:31am PST



mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er ekki rétti tíminn til að vera einn. Komdu þér út úr húsi. Viss aðili fær rauða spjaldið hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er ekki rétti tíminn til að vera einn. Komdu þér út úr húsi. Viss aðili fær rauða spjaldið hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant