Beckham og Richie nýtt par?

Brooklyn Beckham sat fyrir hjá ítalska Vogue.
Brooklyn Beckham sat fyrir hjá ítalska Vogue. mbl

Ástarlífið virðist blómstra hjá frumburði Beckham-hjónanna því nú berast fréttir af því að Brooklyn Beckham og Sofia Richie séu byrjuð saman. Þau sáust saman í Lundúnum um helgina og virtust vera mjög hamingjusöm. 

Beckham er búsettur í Bretlandi en Richie býr í borg englanna, Los Angeles, í Kaliforníu. Fyrir þá sem ekki þekkja Sofiu Richie þá er hún dóttir Lionel Richie og starfar sem fyrirsæta. 

Í haust sagði mbl.is frá því að Brooklyn Beckham hefði slitið sambandi sínu við Chloë Grace Mor­etz. 

Skötu­hjú­in höfðu verið par í nokkra mánuði, en þau eru voru einnig orðuð við hvort annað árið 2014.

Beckham eyddi síðasta sumri í Los Ang­eles, þar sem Mor­etz býr, en þau höfðu verið óaðskilj­an­leg síðustu mánuði.

Nú velta menn og konur því fyrir sér hvort Beckham hafi hnotið um Richie síðasta sumar þegar hann dvaldi í Los Angeles. Þegar stórt er spurt er fátt um svör.  

Fyrirsætan Sofia Richie.
Fyrirsætan Sofia Richie. mbl.is/AFP
Brooklyn Beckham og leikkonan Chloë Grace Moretz meðan allt lék …
Brooklyn Beckham og leikkonan Chloë Grace Moretz meðan allt lék í lyndi. mbl.is/AFP
Justin Bieber og Sofia Richie voru saman um tíma.
Justin Bieber og Sofia Richie voru saman um tíma. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson