Harmar skilnaðinn

Gwen Stefani og Gavin Rossdale voru par í tæpa tvo …
Gwen Stefani og Gavin Rossdale voru par í tæpa tvo áratugi. Ljósmyndari / Jason Kempin

Stjörnuhjónin fyrrverandi Gavin Rossdale og Gwen Stefani skildu á síðasta ári, en þau höfðu verið par í tæpa tvo áratugi.

Í nýju viðtali greindi Rossdale frá því að hann bæri óendanlega virðingu fyrir fyrrverandi konu sinni, og hann hefði viljað að hlutirnir hefðu farið á annan veg.

„Skilnaður er akkúrat andstæðan við það sem mig langaði, en hérna erum við samt. Ef dauðinn er undanskilinn held ég að skilnaður sé það erfiðasta og sársaukafyllsta sem maður getur gengið í gegnum,“ sagði söngvarinn í viðtali við The Sun.

„Það eina góða við þetta er það að bæði berum við hag barnanna fyrir brjósti. Við gerum allt sem í okkar valdi stendur til þess að breytingin verði auðveld fyrir þau,“ bætti söngvarinn við, en hann og Stefani eiga saman þrjá syni á aldrinum 10 til tveggja ára.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson