Sögð hafa hafnað bónorði Disicks

Kardashian er sögð hafa hafnað bónorði barnsföður síns.
Kardashian er sögð hafa hafnað bónorði barnsföður síns. Instagram/Scott Disick.

Glaumgosinn Scott Disick, sem einnig er barnsfaðir Kourtney Kardashian, er sagður hafa beðið um hönd stjörnunnar í nýafstaðinni ferð til Costa Rica, þar sem fjölskyldan sletti úr klaufunum og tók upp efni fyrir raunveruleikaþátt sinn.

Disick fór þó heim í fússi, degi áður en samferðafólk hans pakkaði saman. Skömmu síðar var hann lentur í Miami, þar sem hann sást með unga dömu upp á arminn.

Frétt mbl.is: Disick kominn með dömu upp á arminn

Vefmiðillinn Mirror heldur því fram að Disick hafi rokið heim vegna þess að Kardashian vildi ekki giftast honum.

„Scott bað um hönd Kourtney. Hann var þó ekki með hring, heldur sagði einfaldlega eigum við að gifta okkur?“

Honum varð þó ekki kápan úr því klæðinu, eins og segir í frétt miðilsins.

„Scott skammaðist sín, var reiður og í uppnámi.“

Parið sleit sambandi sínu árið 2015, eftir að upp komst um framhjáhald Disicks, en þau eru sögð hafa verið að reyna að vinna í sínum málum undanfarið.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson