Hudson hundleið á stefnumótaforritum

Kate Hudson nennir ekki að nota stefnumótaforrit.
Kate Hudson nennir ekki að nota stefnumótaforrit. AFP

Kate Hudson er ekki sérlega hrifin af stefnumótaforritum og kýs frekar að hitta karlmenn upp á gamla mátann.

„Það sem er klikkað við þetta er að margir frægir nota þessi stefnumótaforrit, sem fær mann til að hugsa,“ sagði leikkonan í viðtali við spjallþáttadrottninguna Ellen Degeneres.

Leikkonan er þó sjálf ekki hrifin af því að notast við slíkar aðferðir til þess að næla sér í karlmann.

„Maður sér myndarlegan mann, kíkir á aðganginn hans og ákveður að senda honum skilaboð. Síðan fer maður að spjalla og allt fer úrskeiðis,“ bætti leikkonan við, sem augljóslega hefur ekki góða reynslu af slíkum samskiptum.

„Hvers vegna hittir maður ekki bara gæja á Starbucks. Hvers vegna þora karlmenn ekki að kynna sig og spyrja hvort maður vilji hitta þá? Kannski er ég bara gamaldags.“

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant