Jeremy Clarkson nýtur lífsins með nýju kærustunni

Clarkson og kærastan skelltu sér í frí til Barbados.
Clarkson og kærastan skelltu sér í frí til Barbados. Skjáskot / Daily Mail

Jeremy Clarkson og kærasta hans, Lisa Hogan, hafa undanfarið sleikt sólina og slappað af á Barbados. Skötuhjúin eru talin hafa farið að stinga saman nefjum fyrir stuttu, en þau hafa nokkrum sinnum sést saman á undanförnum vikum.

„Jeremy virtist vera afar afslappaður í kringum Lisu, og þau virtust vera afar hrifin hvort af öðru. Þau hlógu og göntuðust eins og pör gera,“ er haft eftir ónefndum heimildarmanni Daily Mail.

Clarkson hefur mikið verið á milli tannanna á fólki undanfarin ár, sér í lagi eftir að hann var rekinn frá BBC en hann var einn af umsjónarmönnum þáttarins Top Gear. Í kjölfarið færðu hann og samstarfsmenn hans sig yfir á streymisveituna Amazon Prime, þar sem þeir stjórna nýjum bílaþætti.

Top Gear hefur ekki verið upp á sitt besta eftir að Clarkson og félagar yfirgáfu þáttinn, en áhorf á hann hefur minnkað töluvert.

Skötuhjúin voru hlaðin farangri þegar þau lentu.
Skötuhjúin voru hlaðin farangri þegar þau lentu. Skjáskot / Daily Mail
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson