Segir Presley reyna að eyðileggja orðspor sitt

Lisa Marie Presley og Michael Lockwood eiga í hatrömmum deilum.
Lisa Marie Presley og Michael Lockwood eiga í hatrömmum deilum. Skjáskot / Daily Mail

Á dögunum var greint frá því að tvíburadætur Lisu Marie Presley hefðu verið settar í umsjá barnaverndaryfirvalda vegna ásakana um að ósæmilegt myndefni með börnum hefði fundist á tölvu föður þeirra.

Nú hefur þó verið greint frá því að stúlkurnar, sem eru átta ára, séu í umsjón ömmu sinnar, Priscillu Presley. Foreldrar stúlknanna, Lisa Marie Presley og Michael Lockwood, eiga um þessar mundir í hatrömmum deilum en þau slitu hjónabandi sínu á síðasta ári.

Samkvæmt dómsskjölum heldur Presley því fram að hún hafi fundið fjölda ósæmilegra ljósmynda og myndskeiða af börnum á tölvu Lockwood. Barnsfaðir hennar er afar ósáttur við fréttaflutning af málinu og sakar Presley um að reyna að sverta nafn sitt.

„Ég er fullur viðbjóðs yfir því að hún hafi lýst ásökunum á hendur mér, sem ekki hafa verið sannaðar,“ segir Lockwood í dómsskjölum eins og fram kemur í frétt Daily Mail.

„Eins og ég komst að í 10 ára sambandi okkar, og rétturinn mun líklega komast að, á Priscilla í miklum erfiðleikum með að vera heiðarleg og hún tekur sjaldan, eða aldrei, ábyrgð á eigin gerðum.“

„Það er sérlega ósmekklegt að hún hafi lagt meira kapp á það að eyðileggja orðstír minn, í stað þess að huga að því að þessar fölsku ásakanir geta borist eyrum dætra okkar.“

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Leitaðu nýrra leiða til þess að auðga líf þitt og bæta. Einhver þér eldri getur miðlað þér af reynslu sinni.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
3
Kolbrún Valbergsdóttir
4
Sigríður Dúa Goldsworthy
5
Arnaldur Indriðason
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Leitaðu nýrra leiða til þess að auðga líf þitt og bæta. Einhver þér eldri getur miðlað þér af reynslu sinni.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
3
Kolbrún Valbergsdóttir
4
Sigríður Dúa Goldsworthy
5
Arnaldur Indriðason