Ekki er nú nema vika þar til kjötkveðjuhátíðin í Ríó í Brasilíu hefst af fullum krafti. Þegar svo stutt er í hin litríku hátíðarhöld láta borgarbúar jafnvel hunda sína taka þátt í fjörinu.
Síðastliðin 14 ár hafa hundaeigendur tekið forskot á sæluna með sinni eigin göngu, „Blacão“, sem er samsett úr orðunum „bloco“ eða götuhátíð og „cão“ eða hundur og tekur jafnan fjölmennur hópur ferfætlinga og tvífætlinga þátt í göngunni sem haldin er við Copacabana-ströndina.