Deitar ekki yngri menn

Jennifer Lopez segir aldurinn engu máli skipta.
Jennifer Lopez segir aldurinn engu máli skipta. AFP

„Ég deita ekki yngri menn. Það er ekki eins og þeir þurfi að vera yngri, þetta snýst ekki um það,“ sagði söngkonan Jennifer Lopez í spjallþætti Ellen Degeneres.

„Ef mér líkar við þá, líkar mér við þá. Og ef mér líkar ekki við þá, þá líkar mér ekki við þá. Þetta snýst bara um einstaklinginn. Þetta snýst um manneskjuna og hefur ekkert með aldur að gera,“ áréttaði söngkonan.

Lopez segist fljótlega hafa fengið á sig stimpil eftir að hún hóf samband við fyrrverandi kærasta sinn, dansarann Casper Smart sem er 29 ára.

Þá var söngkonan einnig orðuð við tónlistarmanninn Drake á síðasta ári, en samband þeirra er sagt hafa liðið undir lok.

Lopez gefur þó lítið fyrir vangavelturnar og segir að þetta snúist allt um aðdráttarafl.

„Ef þeir eru eldri eru þeir eldri og ef þeir eru yngri þá eru þeir yngri. Það skiptir ekki máli, þetta snýst um hvort mér finnist þeir aðlaðandi eða ekki.“

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson