Fyrirsætan Kendall Jenner er ekki á flæðiskeri stödd og litast smekkur hennar eflaust af því. Það þarf því kannski ekki að undra að hún splæsi í tannskraut úr skíragulli, til þess eins að líta sæmilega út.
Jenner skartaði tannskrautinu á mánudagskvöld þegar hún skellti sér út á lífið eftir viðburð hjá tímaritinu Love Magazine.
Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum var Jenner hoppandi kát með tannskrautið og skartaði gylltum skartgripum í stíl.