Kvikmyndin T2 Trainspotting, framhald kvikmyndarinnar Trainspotting, er gagnrýnd í Morgunblaðinu í dag og segir gagnrýnandi m.a. að hún nái ekki sömu hæðum og fyrri mynd en færi áhorfandanum þó vel ígrundaðar hugsanir um það hvað felist í vináttu, svikum og því að hafa smá „lust for life“ þegar bestu árin virðist vera kirfilega að baki.
Sagan hefst 20 árum eftir að Mark Renton (Ewan McGregor) sveik vini sína. Hann er enn á hlaupum en að þessu sinni á hlaupabretti í Amsterdam. Hann snýr aftur heim til fátækrahverfa Edinborgar, þar sem hans bíður uppgjör við vinina sem hann sveik fyrir 20 árum.
Gagnrýnandi telur fortíðarþrá helsta galla kvikmyndarinnar, leikstjórinn gangi heldur langt í því að minna áhorfendur á fyrri mynd sem hann leikstýrði einnig. Dóminn má lesa í heild sinni í Morgunblaðinu í dag.