Karlie Kloss var eitt sinn vandræðalegur unglingur

Karlie Kloss er farsæl fyrirsæta, en eins og við hin …
Karlie Kloss er farsæl fyrirsæta, en eins og við hin var hún eitt sinn vandræðalegur unglingur. AFP

Karlie Kloss hefur ekki alltaf verið ofurfyrirsæta, því eins og við hin var hún eitt sinn vandræðalegur unglingur.

Daily Mail birti myndir frá yngri árum Kloss, en þar má sjá 16 ára klappstýru sem enn hafði ekki slegið í gegn.

Kloss byrjaði að sitja fyrir á unglingsárunum, en jafnaldrar hennar voru ekki mikið gefnir fyrir í tísku og þótti hún á tíðum skringilega útlítandi, til að mynda þegar hún mætti í skólann eftir tískuvikuna í París þar sem augnabrúnir hennar höfðu verið aflitaðar.

„Krakkarnir gátu strítt mér á mörgu. Jafnaldrar mínir lásu ekki Vogue, eða höfðu áhuga á tísku. Í þeirra augum var ég skrýtin, hávaxin geimvera,“ sagi fyrirsætan í viðtali árið 2015.

Kloss er ákaflega hávaxin, eins og flestar starfssystur hennar, en það kom bersýnilega í ljós þegar hún stillti sér upp við hlið leikkonunnar Evu Longoria á síðasta ári.

Frétt mbl.is: „Örlítill“ hæðarmunur

Kloss áður en hún sló í gegn.
Kloss áður en hún sló í gegn. Skjáskot / Daily Mail
Eins og sjá má var Kloss töluvert hærri en jafnöldrur …
Eins og sjá má var Kloss töluvert hærri en jafnöldrur hennar. Skjáskot / Daily Mail
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson