Tvíburarnir sannkölluð guðsgjöf

Söngkonan Beyoncé er hæstánægð með þungunina.
Söngkonan Beyoncé er hæstánægð með þungunina. AFP

Beyoncé setti netið á hliðina á dögunum þegar hún tilkynnti að hún ætti von á tvíburum. Söngkonan og eiginmaður hennar, rapparinn Jay Z, eru himinlifandi með krílin en þau eru bæði sögð vilja eiga stóra fjölskyldu.

„Jay og Beyoncé eru á frábærum stað, þau hafa eytt meiri tíma saman undanfarið ár og samband þeirra er afar gott,“ segir ónefndur heimildamaður í samtali við E!.

„Þau hafa alltaf viljað stóra fjölskyldu, þannig að þegar þau fengu fréttirnar um að þau ættu von á tvíburum voru þau himinlifandi. Þau hafa verið að reyna að eignast barn í nokkurn tíma, svo að tvíburarnir eru sannkölluð guðsgjöf.“

Þá er einnig greint frá því að fimm ára dóttir hjónanna, Blue Ivy, sé yfir sig spennt.

„Blue hefur gaman af því að snerta magann á Beyoncé, og virðist hlakka til að verða stóra systir.“

Söngkonan hefur farið mikinn undanfarið, en hún sló til að …
Söngkonan hefur farið mikinn undanfarið, en hún sló til að mynda í gegn á Grammy-verðlaununum. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þessi dagur er betri en flestir þar sem þú hefur gleymt gömlum byrðum. Gakktu úr skugga um að þú misskiljir ekki neitt áður en þú skuldbindur þig til einhvers.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Lone Theils
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þessi dagur er betri en flestir þar sem þú hefur gleymt gömlum byrðum. Gakktu úr skugga um að þú misskiljir ekki neitt áður en þú skuldbindur þig til einhvers.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Lone Theils
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant