Veistu ekki hverjir við erum?

Tvíburarnir þurftu frá að hverfa.
Tvíburarnir þurftu frá að hverfa. Skjáskot / Daily Mail

Söngelsku tvíburarnir sem skipuðu dúettinn Jedward voru hreint ekki ánægðir þegar þeim var meinaður aðgangur að veislu sem haldin var eftir Brit-verðlaunin í gær.

Írsku tónlistarmennirnir gerðu garðinn frægan í Evrópsku söngvakeppninni hér um árið þegar þeir fluttu lagið „Lipstick“. Á dögunum tóku þeir síðan þátt í raunveruleikaþáttunum Celebrity Big Brother.

Afrekin dugðu þó ekki til, enda voru nöfn þeirra ekki á gestalistanum, og fengu þeir þar af leiðandi ekki inngöngu.

„Það fékk enginn inngöngu nema hann væri á gestalistanum og strákarnir voru ekki á honum. Það var því ekki nokkur leið fyrir þá að komast inn. Þeir virtust algerlega miður sín,“ er haft eftir heimildamanni Daily Mail.

Fjöldi stórstjarna var saman kominn á skemmtistaðnum og má þar nefna Ed Sheeran, Emmu Bunton og fyrirsætuna Doutzen Kroes.

Bræðurnir reyndu eins og þeir gátu að sannfæra dyravörðinn um …
Bræðurnir reyndu eins og þeir gátu að sannfæra dyravörðinn um að hleypa sér inn, en allt kom fyrir ekki. Skjáskot / Daily Mail
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson