Beyoncé kemur ekki fram á Coachella

Beyoncé hefur verið ráðlagt að taka því rólega, en hún …
Beyoncé hefur verið ráðlagt að taka því rólega, en hún ber tvíbura undir belti. AFP

Poppdrottningin Beyoncé Knowles mun ekki koma fram á tónlistarhátíðinni Coachella í apríl næstkomandi, en samkvæmt læknisráði á hún að taka því rólega.

Það hefur vart farið fram hjá neinum að söngkonan ber tvíbura undir belti, en hún setti allt á hliðina þegar hún opinberaði þungun sína fyrir nokkrum vikum.

Skipuleggjendur tónlistarhátíðarinnar höfðu ekki vitneskju um að söngkonan væri þunguð fyrr en hún greindi frá því opinberlega, en nú hefur verið ákveðið að söngkonan muni koma fram á hátíðinni á næsta ári í staðinn.

„Samkvæmt læknisráði, þar sem henni var ráðlagt að taka því rólega á næstu mánuðum, hefur Beyoncé ákveðið að koma ekki fram á Coachella-hátíðinni í ár,“ segir í tilkynningu frá hátíðinni.

Samkvæmt frétt Daily Mail hefur ekki verið greint frá því hver muni fylla skarð söngkonunnar.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson