Hjartasteinn sigurvegari kvöldsins

Hluti hópsins sem kom að gerð Hjartasteins safnaðist saman á …
Hluti hópsins sem kom að gerð Hjartasteins safnaðist saman á sviðinu í kvöld til að veita viðurkenningunni móttöku. mbl.is/Kristinn Magnússon

Kvikmyndin Hjartasteinn í leikstjórn Guðmundar Arnars Guðmundssonar var ótvíræður sigurvegari Eddunnar 2017 þegar verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn á Hótel Hilton Reykjavík Nordica fyrr í kvöld og sjónvarpað beint, í opinni dagskrá á RÚV.

Hjartasteinn hlaut alls níu Eddur, en hafði verið tilnefnd til sextán. Hún var verðlaunuð sem mynd ársins, fyrir kvikmyndatöku, klippingu, leikmynd og búninga auk þess sem Guðmundur var verðlaunaður fyrir bæði leikstjórn sína og handrit. Blær Hinriksson og Nína Dögg Filippusdóttir voru verðlaunuð fyrir leik sinn í myndinni, hann fyrir leik í aðalhlutverki og hún í aukahlutverki.

mbl.is/Kristinn Magnússon

Næstflestar Eddur hlaut kvikmyndin Eiðurinn í leikstjórn Baltasars Kormáks. Hún hlaut alls sex verðlaun, en hafði verið tilnefnd til þrettán. Hún var verðlaunuð fyrir brellur, gervi, hljóð og tónlist auk þess sem Hera Hilmarsdóttir og Gísli Örn Garðarsson voru verðlaunuð fyrir leik sinn, hún í aðalhlutverki og hann í aukahlutverki.

„Ég átti ekki von á þessu, en auðvitað þykir mér vænt um þetta,“ segir Gunnar H. Baldursson leikmyndahönnuður sem er nýjasti heiðursverðlaunahafi Eddunnar. Gunnar útskrifaðist úr auglýsingadeild Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1971 og hóf sama ár störf hjá leikmyndadeild Sjónvarpsins. Fyrstu árin vann hann hin ýmsu störf deildarinnar en lengst af sem leikmyndahönnuður og um árabil var hann deildarstjóri. Gunnar hefur unnið jöfnum höndum við leikmyndir fyrir kvikmyndir og sjónvarpsþætti.

Blær Hinriksson var leikari ársins í aðalhlutverki fyrir Hjartastein.
Blær Hinriksson var leikari ársins í aðalhlutverki fyrir Hjartastein. mbl.is/Kristinn Magnússon

„Heimildarmyndin Verstöðin Ísland frá 1991 í leikstjórn Erlends Sveinssonar er meðal eftirminnilegustu verkefna. Það var drifið áfram af miklum metnaði, en gekk ekki þrautalaust sökum þess hversu vont veðrið var,“ segir Gunnar, þegar hann er inntur eftir verkefnum á ferlinum sem standi upp úr, en Gunnar hannaði einnig leikmyndir fyrir Óðal feðranna (1980), Hrafninn flýgur (1984) og Alger Sveppi og Gói bjargar málunum (2014).

Mikilvægt að hlúa að grunninum

„Það skemmtilegasta sem ég geri er að búa til barnaefni,“ sagði Ævar Þór Benediktsson þegar hann tók við verðlaunum fyrir besta barna- og unglingaefni. Hann sagði það mikla ábyrgð að búa til barnaefni og því þyrfti að koma fram við barnamenningu af virðingu.

Hann skoraði á stjórnvöld og fjölmiðla að gera barnamenningu hærra undir höfði. „Það er ekki skrýtið ef húsið hrynur ef það er ekki lögð alúð við grunninn. Þetta er ekki flókið,“ sagði Ævar. Hann jafnframt þakkaði Gunna og Felix fyrir þeirra mikilvæga framlag til barnamenningar og vísaði til sjónvarpsþátta þeirra. Verðlaunin tileinkaði hann afa sínum og nafna. 

Ævar Þór Benediktsson hlaut Edduna fyrir besta barna- og unglingaefni …
Ævar Þór Benediktsson hlaut Edduna fyrir besta barna- og unglingaefni ársins. mbl.is/Kristinn Magnússon

„Við tökum þá bara Edduna.“ Þetta sögðu liðsmenn íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu þegar hallaði undan fæti á EM í sumar, að sögn Sævars Guðmundssonar leikstjóra heimildarmyndar ársins Jökullinn logar, þegar hann tók við verðlaununum. 

Hilmar Oddsson tók við verðlaununum fyrir hönd dóttur sinnar, Heru Hilmarsdóttur, sem var valin leikkona ársins í aðalhlutverki.

Jökullinn logar er heimildarmynd ársins.
Jökullinn logar er heimildarmynd ársins. mbl.is/Kristinn Magnússon

Kvikmynd ársins

Hjartasteinn – framleidd af Join Motion Pictures

Leikstjórn ársins

Guðmundur Arnar Guðmundsson fyrir Hjartastein

Handrit ársins

Guðmundur Arnar Guðmundsson fyrir Hjartastein

Leikari ársins í aðalhlutverki

Blær Hinriksson fyrir Hjartastein

Leikkona ársins í aðalhlutverki

Hera Hilmarsdóttir fyrir Eiðinn

Leikari ársins í aukahlutverki

Gísli Örn Garðarsson fyrir Eiðinn

Leikkona ársins í aukahlutverki

Nína Dögg Filippusdóttir fyrir Hjartastein

Heimildarmynd ársins

Jökullinn logar – framleidd af Purkur og Klipp Productions

Stuttmynd ársins

Ungar – framleidd af Askja Films

Sjónvarpsmaður ársins

Helgi Seljan í Kastljósi

Skemmtiþáttur ársins

Orðbragð – framleiddur af RÚV

Menningarþáttur ársins

Með okkar augum – framleiddur af Sagafilm

Frétta- eða viðtalsþáttur ársins

Leitin að upprunanum – framleiddur af Stöð 2

Barna- og unglingaefni ársins

Ævar vísindamaður – framleitt af RÚV

Lífsstílsþáttur ársins

Rætur – framleiddur af RÚV

Leikið sjónvarpsefni ársins

Ligeglad – framleitt af Filmus

Sjónvarpsefni ársins

Ófærð

Tónlist ársins

Hildur Guðnadóttir fyrir Eiðinn

Hljóð ársins

Huldar Freyr Arnarson fyrir Eiðinn

Leikmynd ársins

Hulda Helgadóttir fyrir Hjartastein

Búningar ársins

Helga Rós V. Hannam fyrir Hjartastein

Kvikmyndataka ársins

Sturla Brandth Grøvlen fyrir Hjartastein

Gervi ársins

Ragna Fossberg og Heimir Sverrisson fyrir Eiðinn

Klipping ársins

Anne Østerud og Janus Billeskov Jansen fyrir Hjartastein

Brellur ársins

Pétur Karlsson og Daði Einarsson fyrir Eiðinn

Heiðursverðlaun

Gunnar H. Baldursson

mbl.is/Kristinn Magnússon
Ungar var valin stuttmynd ársins.
Ungar var valin stuttmynd ársins. mbl.is/Kristinn Magnússon
Sigrún Ósk Kristjánsdóttir tók við verðlaunum fyrir Leitina að upprunanum …
Sigrún Ósk Kristjánsdóttir tók við verðlaunum fyrir Leitina að upprunanum sem frétta- eða viðtalsþátt ársins. mbl.is/Kristinn Magnússon
Þátturinn Ligeglad var valinn leikið sjónvarpsefni ársins.
Þátturinn Ligeglad var valinn leikið sjónvarpsefni ársins. mbl.is/Kristinn Magnússon
Hilmar Oddsson tók við verðlaunum fyrir hönd dóttur sinnar Heru.
Hilmar Oddsson tók við verðlaunum fyrir hönd dóttur sinnar Heru. mbl.is/Kristinn Magnússon
Gunnar H. Baldursson er nýjasti heiðursverðlaunahafi Eddunnar.
Gunnar H. Baldursson er nýjasti heiðursverðlaunahafi Eddunnar. mbl.is/Kristinn Magnússon
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Leitaðu nýrra leiða til þess að auðga líf þitt og bæta. Einhver þér eldri getur miðlað þér af reynslu sinni.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
3
Kolbrún Valbergsdóttir
4
Sigríður Dúa Goldsworthy
5
Arnaldur Indriðason
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Leitaðu nýrra leiða til þess að auðga líf þitt og bæta. Einhver þér eldri getur miðlað þér af reynslu sinni.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
3
Kolbrún Valbergsdóttir
4
Sigríður Dúa Goldsworthy
5
Arnaldur Indriðason