Það er ekki alltaf tekið út með sældinni að vera stórstjarna, eins og fyrirsætan Chrissy Teigen sannaði á Óskarsverðlaununum í gær þegar hún steinsofnaði í miðjum áhorfendaskaranum.
Aðdáendur fyrirsætunnar voru fljótir að taka eftir atvikinu, sem í kjölfarið var mikið rætt á samfélagsmiðlum eins og fram kemur í frétt Mirror.
Sjálf hefur Teigen ekki tjáð sig um atvikið og því ekki ljóst hvort hún hafi verið orðin syfjuð, eða hvort henni hafi hreinlega leiðst öll ræðuhöldin.
Teigen og eiginmaður hennar, tónlistarmaðurinn John Legend, eiga saman tæplega eins árs gamla dóttur og því ekki nema von að Teigen hafi syfjað svolítið. Enda er krefjandi að vera foreldri.
Foreldrar ungra barna þekkja það að vera þreyttir.
Houston aquarium with Luna for @si_swimsuit launch week!!
A post shared by chrissy teigen (@chrissyteigen) on Feb 17, 2017 at 4:33pm PST