Skringilegt klapp Nicole Kidman vekur athygli

Netverjum leist ekki á blikuna þegar Kidman hóf að klappa …
Netverjum leist ekki á blikuna þegar Kidman hóf að klappa saman höndum. Skjáskot / Youtube

Það hefur líkast til ekki farið fram hjá neinum að Óskarverðlaunin fóru fram í nótt og voru þau eftirminnileg fyrir margar sakir.

Frétt mbl.is: Lásu upp heiti rangrar myndar

Það voru þó ekki einungis mistökin í kringum bestu mynd ársins sem vöktu athygli áhorfenda, því margir hverjir tóku eftir kyndugu klappi leikkonunnar Nicole Kidman.

Handahreyfingar leikkonunnar urðu fljótt að umtalsefni á samfélagsmiðlum, og vildu margir meina að ekki væri allt með felldu.

„Í sannleika sagt hef ég meiri áhyggjur af lófataki Nicole Kidman,“ skrifaði einn netverji.

„Nicole Kidman að klappa á Óskarsverðlaununum fær mig til að öskra inni í mér,“ sagði annar.

Margir skildu hvorki upp né niður í klappi Kidman. 

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem óhefðbundið lófatak Kidman vekur athygli, því árið 2015 sýndi hún svipaða takta.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson