Cheryl Cole orðin mamma

Þetta er fyrsta barn þeirra Cole og Payne.
Þetta er fyrsta barn þeirra Cole og Payne. AFP

Sonur breska tónlistarfólksins Liam Payne og Cheryl Cole er kominn í heiminn. Payne birti mynd af drengnum á Instagram fyrr í kvöld og sagðist vera orðlaus yfir syni sínum en hann fæddist á miðvikudaginn. 

„Þetta er augnablik sem ég mun muna það sem eftir er ævi minnar og mín besta minning hingað til,“ skrifar Payne á Instagram. Þar segist hann jafnframt vera „agndofa“ yfir barnsmóður sinni og hvernig hún hafi látið „drauma hans rætast“.

Parið hefur verið saman í rúm tvö ár eða síðan í febrúar 2015. Tíu ára aldursmunur er á þeim en þau kynntust fyrst þegar Payne var aðeins 14 ára gamall og mætti í áheyrnarprufu fyrir The X Factor árið 2008 þar sem Cole var dómari. Payne mætti aftur í prufur árið 2010 sem leiddi til stofnunar hljómsveitarinnar One Direction.

Þetta er fyrsta barn þeirra beggja en Cole er 33 ára og Payne 23 ára.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant