Gigi Hadid hélt upp á afmælið með stæl

Gigi Hadid ásamt kærasta sínum Zayn Malik.
Gigi Hadid ásamt kærasta sínum Zayn Malik. skjáskot/Instagram

Fyrirsætan Gigi Hadid fagnaði 22 ára afmæli sínu um helgina ásamt kærastanum sínum, tónlistarmanninum Zayn Malik. Systir hennar, fyrirsætan Bella Hadid, og mamma hennar fögnuðu einnig með henni. 

Gigi Hadid fékk ýmislegt í afmælisgjöf.
Gigi Hadid fékk ýmislegt í afmælisgjöf. skjáskot/Snapchat

Hadid átti afmælisdag eins og ofurfyrirsætu sæmir samkvæmt Daily Mail. Hún fékk kassa af rósum sem kostar um 65 þúsund íslenskra króna og risastóran blómvönd. Hún fékk líka fallega bleika köku í stíl við jakkann sinn. Að lokum fór fjölskyldan í þyrluflug. 

Gigi Hadid fór í þyrluflug í tilefni afmælisins.
Gigi Hadid fór í þyrluflug í tilefni afmælisins. skjáskot/Snapchat

Í tilefni af afmælinu birti Bella Hadid nokkrar myndir af þeim systrum. Myndirnar sýna þær saman þegar þær voru litlar en einnig hversu samrýndar þær eru eftir að þær fullorðnuðust. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson