Stjörnur eiga stjörnuvini

skjáskot/Instagram

Þótt einhver sé frægur þýðir það ekki að hann þekki alla aðra fræga. Hins vegar eru margar Hollywood stjörnur sem eiga vini sem eru líka stjörnur. Það vita margir að Ben Affleck og Matt Damon eru góðir vinir en annar vinskapur kemur meira á óvart, Popsugar tók saman lista. 

Leikkonan Blake Lively og söngkonan Taylor Swift eyddu miklum tíma saman þegar þær dvöldu í Ástalíu á sama tíma. Ekki er annað að sjá á myndinni hér að ofan en að þær hafi skemmt sér konunglega.  

Tónlistarmaðurinn Ed Sheeran kynntist leikkonunni Courtney Cox í gegnum sameiginlegan vin. Seinna fékk hann síðan að gista frítt í húsi Cox á Malibu í þrjá mánuði þegar hann vann að nýrri plötu. 

Ed Sheeran og Courtney Cox.
Ed Sheeran og Courtney Cox. skjáskot/Popsugar

Leikkonan Jennifer Lawrence og söngkonan Adele eru góðar vinkonur og er Emma Stone sameiginleg vinkona þeirra. 

Jennifer Lawrence og Adele.
Jennifer Lawrence og Adele. skjáskot/Popsugar

Sacha Baron Cohen er vinur Kardashian-fjölskyldunnar. Kim Kardashian birti mynd af honum þegar hann heimsótti fjölskylduna ásamt eiginkonu sinni Islu Fisher og Courtney Cox. 

Kardashian-fjölskyldan ásamt Sasha Baron Cohen og Isla Fisher.
Kardashian-fjölskyldan ásamt Sasha Baron Cohen og Isla Fisher. skjáskot/Instagram

Söngkonan Selena Gomez og fyrirsætan Cara Delevingne eru góðar vinkonur og hafa meðal annars farið í frí saman. 

Selena Gomez og Cara Delevigne.
Selena Gomez og Cara Delevigne. skjáskot/Popsugar

David Beckham kynntist Snoop Dogg rétt eftir að hann fluttist til Los Angles árið 2008. Rapparinn segist alltaf gefa fótboltakappanum fyrrverandi nýjustu plöturnar sínar áður en þær koma út. 

David Beckham og Snoop Dogg.
David Beckham og Snoop Dogg. skjáskot/Popsugar

Beyoncé, eiginkona Jay Z, og Gwyneth Paltrow, fyrrverandi eiginkona Chris Martin, eru góðar vinkonur og tónlistarmennirnir eru einnig góðir vinir.

Jay Z og Chris Martin.
Jay Z og Chris Martin. skjáskot/Popsugar

Leikararnir Orlando Bloom og Justin Theroux hafa báðir mikinn áhuga á mótorhjólum og hafa þeir þannig tengst vináttuböndum. 

Orlando Bloom og Justin Theroux.
Orlando Bloom og Justin Theroux. skjáskot/Popsugar

Leikkonurnar Lena Dunham og Claire Danes ólust upp í sama hverfi en urðu ekki vinkonur fyrr en á fullorðinsárum. 

Lena Dunham og Claire Danes.
Lena Dunham og Claire Danes. skjáskot/Popsugar

Leikkonurnar Reese Witherspoon og Naomi Watts urðu góðar vinkonur eftir að Witherspoon sendi Watts bréf um hversu frábærlega hún hefði staðið sig í myndinni The Impossible. 

Reese Witherspoon og Naomi Watts.
Reese Witherspoon og Naomi Watts. skjáskot/Popsugar

Söngkonan Mariah Carey og leikarinn Will Ferrell eru vinir. 

Mariah Cary og Will Farrell.
Mariah Cary og Will Farrell. skjáskot/Instagram

 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson